Ice Fitness
Skólahreysti
Eva Sveinsdóttir og Sævar Ingi Borgarsson Íslandsmeistarar Icefitness 2009 - Til hamingju snillingar :)
 

   Forsíða
   Skráning
   Fréttir
   Fyrirspurnir
   Icefitness
   Tenglar
   Úrslit móta
   Viðtalið
   Skráning
   Video
   Keppnisgreinar
   Myndir


 
 
     

Á undanförnum árum hefur verið mikil umræða í þjóðfélaginu er varðar hreyfingarleysi og holdafar barna og unglinga og á sama tíma hefur verið aukið framboð á afþreyingu sem felur í sér kyrrsetu.  Til að sporna við þessari þróun er mikilvægt að þróa aðferðir til að gera hreyfingu að eftirsóknarverðum og skemmtilegum valkosti fyrir börn og unglinga og eru til þess fjölmargar leiðir. 

 Mjög mikilvægt er að tengja saman skólastarf og þátt hreyfingar því að þar er hægt að ná til allra barna og unglinga og hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands m.a. sett af stað skólaíþróttanefnd sem hefur það að markmiði að reyna að stuðla að aukinni hreyfingu meðal barna og unglinga.  Skólaíþróttanefnd ÍSÍ skipa fulltrúar frá Menntamálaráðuneytinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Íþróttakennarafélagi Íslands og ÍSÍ. 

 Síðastliðið vor fór fram keppni í hreysti (fitness) í samvinnu Ungmennasambands Kjalarnesþings og Ice-Fitness.  Til þessarar keppni mættu 6 skólar og fór keppnin fram í Mosfellsbæ.  Mikill áhugi var meðal nemenda og gaf þetta íþróttakennurum skólanna möguleika á að leggja áherslu á grunnþjálfun nemenda og vinna með líkamlegar æfingar sem undirbúning fyrir þessa keppni.

 Hreystiþrautirnar eru byggðar upp á svipaðan hátt og ýmis leiktæki á leikvöllum sveitarfélaga og tengir því saman leik og íþrótt.  Hreysti er ekki öfgakennd íþrótt heldur grein sem allir geta stundað og prófað og haft gaman af.  Það sem er mjög jákvætt við þrautirnar er að keppendur eru einungis að vinna með eigin líkama og þrautirnar þjálfa grunnhreyfifærni einstaklinga.

 Það er til söngkeppni í skólum og spurningakeppni en ekki er til keppni þar sem reynir á líkamlegt og andlegt atgervi og sýnir hrausta unglinga!

 Með þetta í hug hefur Ice-Fitness í samvinnu við Skólaíþróttanefnd ÍSÍ í hyggju að standa fyrir Grunnskólamóti í Skóla-hreysti.  Ætlunin er að gefa þeim fimmtíu grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, sem eru með níunda og tíunda bekk, færi á að taka þátt.  Keppt verður í fjórum forkeppnum sem fara fram í Reykjavík – Hafnarfirði og Kópavogi.   Tvö stigahæstu liðin í hverri keppni munu síðan keppa til úrslita í Laugardalshöll í byrjun apríl. 

 Keppnin mun fara fram á fimmtudögum kl. 20:00 og hefst þann 2. mars nk.  Hún mun síðan fara fram vikulega en úrslitadagurinn er áætlaður sunnudagurinn 2. apríl.

 Tryggt hefur verið að frá hverri undankeppni verður sýndur 45 mín þáttur í opinni dagskrá í sjónvarpi og að úrslitakeppnin verði í beinni útsendingu í opinni dagskrá.  Þá hefur verið tryggt að aðrir fjölmiðlar muni fjalla um þessa keppni.

 Mikið verður lagt í undirbúning og reynt verður að gera umhverfið skemmtilegt fyrir keppendur jafnt sem áhorfendur.  Til að gera þessa keppni mögulega hefur verið leitað eftir stuðningi frá tveimur fyrirtækjum.  Osta og smjörsalan verður aðalstyrktaraðili keppninnar en fyrirtækið hefur stutt íþróttakennara og skólastarf í gegnum árin, s.s. í gegnum Mjólkurdagsnefnd og átaksverkefna tengdum heilsu barna- og unglinga.  Toyota umboðið mun sjá um og útvega bíla í hraðaþraut keppninnar.  Hvorki skólar né keppnislið þurfa að greiða fyrir þátttöku í Skóla-hreysti og þá verður frítt fyrir áhorfendur inn á þessa viðburði.

 Hver skóli hefur tækifæri á að halda sína eigin forkeppni fyrir nemendur eða getur hvatt nemendur til að leggja áherslu á þessar greinar í íþróttatímunum/ skólaleikfiminni.   Útfærsla á forkeppni og val á keppendum er alfarið í höndum hvers skóla.

 Um Skólahreysti

 Skipan liðs

Keppnin er liðakeppni milli skóla.   Hvert lið er skipað tveimur drengjum og tveimur stúlkum úr 9. eða 10. bekk.  Hver skóli getur sent eitt keppnislið og skráir þá einstaklinga sem munu keppa fyrir hönd skólans.

Keppnisgreinar og keppnisfyrirkomulag

1) Upphífingar / strákar        2) Armbeygjur / stelpur                  3) Dýfur / strákar       

4) Fitnessgreip / stelpur        5) Hraðaþraut / strákar                 6) Hraðaþraut / stelpur

 Í Keppnisgreinunum munu tveir skólar keppa samtímis nema í fitnessgreip en þar munu fimm skólar keppa í einu.

 Keppendurnir skipta á milli sín keppnisgreinum.  Annar strákurinn tekur upphífingar og dýfur og hinn tekur hraðaþraut.  Eins er með stelpurnar, önnur tekur armbeygjur og fitnessgreip og hin hraðaþraut.  Þetta fyrirkomulag gefur möguleika á fjölbreyttara vali á keppendum.

 Í hraðaþraut fer stelpan fyrst og þegar hún lýkur hringnum inni í bíl má strákurinn fara af stað.  Samanlagður tími þeirra gildir.

 Stigagjöf

Stigagjöfinni er þannig háttað að fyrir fyrsta sætið í upphífingum – armbeygjum – dýfum og fitnessgreip eru gefin  10 stig, annað sætið gefur 9 stig, þriðja sætið gefur 8 stig og svo koll af kolli.  Fyrsta sætið fyrir hraðaþraut gefur 20 stig, annað sætið 18 stig, þriðja sætið 16 stig og svo framvegis.  Sigurvegari telst vera sá skóli sem hlýtur flest stig.

Verðlaun

·         Skólaliðin sem lenda í verðlaunasætum fá peningaverðlaun/styrk sem mun renna til nemendafélags viðkomandi skóla.  Fyrsta sæti kr. 200.000 – annað sæti kr. 100.000 – þriðja sæti kr. 50.000. 

·         Allir keppendur fá verðlaunapening fyrir þátttöku.

·         Keppendur í úrslitum og þeir fjórir nemendur sem skipa sigurliðið hljóta vegleg verðlaun.

Aðrar upplýsingar

·         Keppnishaldarar munu leggja til keppnisbúninga (boli) fyrir skólaliðin. 

·         Áætlað er að hver keppni verði um tvær klst. að lengd. 

·         Hvorki skólar né keppnislið þurfa að greiða fyrir þátttöku í Skóla-hreysti.

·         Frítt verður fyrir áhorfendur inn á þessa viðburði. 

 

 

 

    Byggt á Xodus vefstjóranum