Viðtalið ! Mars 2005
Náðum á Kristján Ársælsson í vinnunni og spurðum hann nokkurra spurninga !
Fæðingardagur og ár : 29.08.1965
Hæð : Stór strákur.
Þyngd : Keppnisfær.
Hjúskaparstaða : Vel giftur og á fimm börn.
Hvaðan ertu ættaður/ er eh. athyglisverður í ættinni : Úr Reykjavík en ólst upp á Skriðu í Breiðdal. Amma er helst athyglisverð. Var frábær jógakennari. Kenndi jóga til áttræðisaldurs. Ég tel mig hafa íþróttagenin frá henni.
Hvar býrð þú : Í Kópavogi og á leiðinni upp í Norðlingaholt.
Atvinna : Dúkari og flísalagningamaður.
Skólaganga : Frekar erfið og út um allt. Ekki námsmaður mikill en er þó menntaður dúkari og komst í gegnum það með guðshjálp.
Hvar og hvenær hófst þinn íþróttaferill : Í hlöðunni í sveitinni. Þar uppgötvaði ég hæfileika mína í hoppum og skoppum og hlaupum á eftir búfénaði. Þaðan lá leiðin í fimleika og þar hófst fyrir alvöru ferðin á áttina að action man. Ef hér hefði verið sirkusskóli þá hefði ég farið í hann og orðið loftfimleikamaður. Ég fékk nú samt að uppfylla þann draum að hluta þegar ég var fenginn í loftfimleika í uppfærslu á Rómeó og Júlíu.
Hvaða íþróttir hefur þú stundað : Fimleikar, júdó, þolfimi, vaxtarrækt og fitness.
Íþróttatitlar : Margir – hvað er spólan löng hjá spyrli ? 3 sinnum Íslandsmeistari í -70 kg. flokki í vaxtarrækt. 2 sinnum Íslandsmeistari í -80 kg.í vaxtarrækt. Margir pósuverðlaunatitlar í vaxtarrækt – það voru titlar sem mér þótti vænt um. 4 sinnum Íslandsmeistari í Galaxy fitness í röð. 2 sinnum Bikarmeistari í Galaxy fitness. Meistari á alþjóðlegu Galaxy fitnessmóti. Var í 8 sæti á alþjóðlegu móti í júdó og var þá í landsliðinu. Vann nokkra titla í einstökum greinum í fimleikunum. Það sem mér finnst merkilegast við þessa fitnesstitla mína er að ég hef unni öll mót sem ég hef tekið þátt í fyrir utan eitt. Þar tapaði ég fyrir Kjartani Guðbrandssyni á einni upphýfingu. Þetta er svona það helsta. Ætla ekkert að vera að telja upp alla minni háttar titla.
Hvernig finnst þér fitnessið vera að þróast : Þróunin er almennt mjög góð og jákvæð. Það er búið að marka stefnu í fitness. Þar hefur skapast ákveðin hefð og það er komið á sinn stall. Keppendur vita að hverju þeir ganga. Umfjöllun er orðin mjög góð og býður upp á fullt að möguleikum.
Nokkur orð til nýrra fitnesskeppenda : Vera dugleg að æfa. Mæta á mót og láta ekki mótlæti á sig fá. Nýta sér það til framdráttar. Það hefur virkað best fyrir mig.
Stóra spurninginn !! Hvenær ætlar þú að keppa næst í fitness : Þegar ég verð orðinn það gamall að eh. geti unnið mig.
Hvað tekur þig langan tíma að skera niður fyrir mót : Einn mánuður.
Skemmtilegasta mótið : Íslandsmótið 2003. Það var mót mótanna. Þar voru allir bestu fitnessmenn landsins saman komnir og gerðu þeir allir tilkall til titils. Þetta voru Kjartan Guðbrandsson, Arnar Grant, Bjarni Auðunsson, Orri Pétursson, Ívar Guðmundsson og Sævar Speedy Borgarsson. Vona ég hafi ekki gleymt neinum.
Helstu áhugamál : Fjölskyldan, hún kemur næst á eftir egóinu.
Hvað er alltaf til í ískápnum hjá þér : Mjólkurvörur, ávextir og grænmeti.
Uppáhaldsmatur : Lambakjöt.
Hvar og hvenær verslaðir þú þér jakkaföt síðast : Sérsaumuð Armani jakkaföt frá Sævari Karli. Eru svo góð að það er eins og ég sé komin fitness galla. Hrikalega þægileg. Allir strákar sem eru að æfa og eru herðabreiðir eiga að láta sérsauma á sig. Ekkert vit í öðru.
Uppáhaldsíþróttaföt : Adidas.
Uppáhaldsíþróttakarl og kona : Jón Páll Sigmarsson heitinn – mikill áhrifavaldur þegar ég var að byrja í sportinu. Get ekki gert upp á milli tveggja kvenna : Freyja Sigurðardóttir og Sigurlína Guðjónsdóttir fitnessdrottningar. Mér finnst þær báðar skara fram úr.
Bíltegund : Toyota Avensis er fjölskyldubíllinn og Peuguot vinnubíllinn.
Stjórnmálaflokkur : Pass .
Helstu veikleikar : Enginn eða alla vegana mjög fáir og ef þeir eru einhverjir þá eru þeir svo litlir að þeir skipta engu máli.
Helstu kostir : Spyrja konuna.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór : Körfuboltamaður í NBA en svo fór ég fljótlega að átta mig á því að það yrði ekkert rosalega hentugt. Og það kom á daginn – ég er ekki ennþá orðinn nógu stór í það.
Hvaða dýr vildir þú helst vera : Tígrisdýr.
Hvenær gafst þú konunni þinni síðast eh. óvænt : Það er alltaf óvænt ef ég gef henni eitthvað.
Hvaða heimilisverkum sinnir þú aðallega : Rusla til.
Hvað er næst á dagskrá : Flytja inn í nýtt hús sem ég er að vinna í núna. Ferma elsta son minn. Svo er fertugsafmæli fram undan og ég veit ekkert hvað ég á að gera við þann áfanga. Og svo er bara að halda sér í formi og láta strákana vita að ég er ekki hættur – þetta er ekki búið. Að lokum langar mig til að óska ykkur hjónum og öllum áhugamönnum um fitness til hamingju með þennan vef.
lbh