Það var mögnuð stemning í Íþróttahúsinu v.Sunnubraut í dag. Þar fór fram Íslandsmót Icefitness 2009.
Húsið var fullt af áhorfendum og létu þeir ekki sitt eftir liggja að hvetja þetta sterka og flotta íþróttafólk áfram.
Níu karlar mættu til keppni og þrjár konur.
Sævar Ingi Borgarsson og Eva Sveinsdóttir höfðu bæði titil að verja frá Íslandsmóti Icefitness 2008.
Þau þurftu að hafa mikið fyrir því að ná aftur titlinum því andstæðingar þeirra voru gríðarlega erfiðir og það var ekki fyrr en eftir síðustu grein
sem var samanburður að úrslit urðu ljós.
Ásdís Þorgilsdóttir gerði atlögu að íslandsmeti Rannveigu Kramer íslandsmeistara Icefitness 2005 sem er 88 stk. Ásdís náði heilum 84 armbeygjum sem er magnaður árangur og sigraði armbeygjugreinina.
Eva Sveinsdóttir sigraði hreystigreip og hékk í 02:39 mín.
Eva Sveinsdóttir sigraði hraðaþraut og fór hana á 01:16:75. Náði ekki að slá eigið met sem er 01:14:00. Samanburðinn sigraði Eva Sveinsdóttir.
Eva Sveinsdóttir endaði í fyrsta sæti með 28 stig, Ásdís Þorgilsdóttir varð í öðru sæti með 22 stig og Eva Lind Ómarsdóttir varð í þriðja sæti með 10 stig. Allt glæsilegir fulltrúar kvenna í Icefitness.
Sævar Ingi setti hvorki meira né minna en þrjú íslandsmet. Fyrst tók hann íslandsmet Ívars Guðmundssonar og sitt eigið í upphífingum og tók 60 stk. Metið var 59 stk. Því næst sló hann eigið íslandsmet í dýfum sem var 60 stk og tók hvorki meira né minna en 68 stk. Þetta tvennt saman gerði nýtt íslandsmet í samanlögðu eða 128 stk. Var 115 stk sem Sævar átti sjálfur.
Jakob Már Jónharðsson gerði sér lítið fyrir og sló íslandsmet í hraðaþraut og fór brautina á 01:14:26 mín. og sló þar met Sævars Inga sem var 01:17:00
Samanburð sigraði Sævar Ingi.
Sævar Ingi Borgarsson varð íslandsmeistari Icefitness 2009 og náði 87 stigi. Högni Róbert Þórðarson varð í öðru sæti með 74 stig og Jakob Már Jónharðsson varð þriðji með 70 stig.
Við munum setja alla árangra og úrslit inn á morgun, einnig myndir.
Þáttur frá mótinu verður sýndur á RÚV á laugardaginn eftir viku kl.16:10.
Takk innilega fyrir daginn allir sem að mótinu komu.
Lára, Andrés og Vikar
Á myndinni hér að ofan sjáum við nýkrýnda íslandsmeistara Evu og Sævar og Vikar Sigurjónsson sem er framkvæmdastjóri mótsins við Nings bíl en Nings var einn af aðalstyrktaraðilum mótsins.